Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarlestur og bókaskil

20.05.2025
Sumarlestur og bókaskilUm leið og bókasafnið minnir nemendur á að skila bókum fyrir sumarfrí er vakin athygli á „Sumarlestrinum“, lestrarátakinu á bókasafni Garðabæjar sem stendur yfir 31.maí – 23.ágúst. Þemað í ár er „Drekar“ og slagorðin eru: Lestur er minn drekakraftur! - Eldklár lestur með læsisdrekanum! Mjög spennandi og jafnvel eldfimt þema. Síðasti útlánadagur á bókasafninu okkar hér í Flataskóla er annars 28. maí og síðasti skiladagur fyrir sumarfrí er 2. Júní. Nemendur sem ná ekki að ljúka við bókina sína fyrir sumarfrí og halda áfram hjá okkur á næsta skólaári mega að sjálfsögðu hafa bókina í sumarfríinu. Takk fyrir veturinn kæru nemendur og ég hlakka til að hitta ykkur aftur í haust. Ágústa
Til baka
English
Hafðu samband