Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tónmennt

08.05.2025
TónmenntÍ tónmennt í vetur hafa börnin farið í gegnum ferðalagið „Árstíðirinar fjórar“. Börnin hafa lært um líf og starf Antonio Vivaldi og um tímabilið sem hann var uppi og fengið að kynnast tónlistinni hans. Samhliða því hafa þau lært um fiðlufjölskylduna (fiðlu, víólu, selló og kontrabassa), mikið í gengum hlustun og leiki. Nemendur sem spila á viðkomandi hljóðafæri hafa einnig kynnt hljóðfærin sín fyrir samnemendum sínum, hefur það vakið mikla lukku og nemendur staðið sig afar vel í þessu hlutverki. Nemendur hafa einnig fengið að kynnast fjölmörgum ásláttarhljóðafærum sem þau hafa fengið að spila á í vetur undir söng og í rythmaæfingum. Má þar nefna tréspil, tambúrínur, hristur, agogo, skröpur, stafi, þríhorn og alls kyns trommur. Nemendur hafa fengið þónokkra rythmaþjálfun og hafa lært nokkra grunnrythma í tónlist. Verkefnin og sönglögin sem sungin eru hafa oftar en ekki tengst viðkomandi árstíð og hafa nemendur lært fjölmörg lög og unnið skapandi verkefni. Á hverjum mánudegi kemur yngra stigið saman og syngur á sal. Hefur það gengið einstaklega vel og nemendur hafa verið duglegir að taka vel undir og taka virkan þátt.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband