Flatóvisíon 2025

Flatóvisíon söngvakeppnin hefur verið haldin í Flataskóla síðan árið 2009. Þetta er einn þáttur í eTwinning-verkefninu „Schoolovision“ og hefur það verkefni hlotið margar viðurkenningar sem framúrskarandi skólaverkefni bæði hérlendis og erlendis en 30 evrópskir skólar taka þátt í verkefninu. Einn skóli tekur þátt frá hverju landi og sigurvegarar keppninnar jafnframt fulltrúar Íslands í Schoolovision keppninni í ár.
Í ár var keppnin sérlega glæsileg og atriðin hvert öðru betra. Að þessu sinni sigruðu drengir í 5.bekk með lagið Róa með Væb.
Það að taka þátt í keppni eins og þessari krefst mikils hugrekkis og gefur mörg tækifæri á að æfa S-in okkar 5; samkennd, sjálfstjórn, sjálfstæði, seiglu og skapandi hugsun. Hæfileikar nemenda fá að blómstra á ólíkum sviðum og í raun eru allir sem tóku þátt og komu að keppninni sigurvegar.