Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Innritun nemenda fyrir skólaárið 2025-2026

28.02.2025
Innritun nemenda fyrir skólaárið 2025-2026

Innritun nemenda fyrir skólaárið 2025-2026
Innritun fyrir næsta skólaár fer fram dagana 1. – 10. mars. Innritað er í gegnum þjónustugátt Garðabæjar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Innritun fer fram fyrir:

  • Nýja nemendur í 1.bekk
  • Nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla
  • Nemendur í 2.-9. bekk sem skipta um skóla.

Við bjóðum nemendur  sem eru að byrja í 1.bekk í haust  velkomna í heimsókn til okkar í Flataskóla ásamt foreldrum sínum til að skoða skólann.  Nemendur í 2.-7.bekk sem eru að koma úr öðrum skólum eru einnig velkomnir í heimsókn.  Hafið endilega samband við skólann í síma 513-3500 eða í gegnum tölvupóst flataskoli@flataskoli.is til að bóka heimsókn. Til að fá smá innsýn í skólastarfið er hér hægt að horfa á myndband þar sem rætt er við nemendur og kennara skólans: Velkomin í Flataskóla

Innritun í frístundaheimili Flataskóla
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum fer fram á sama tíma, 1.-10.mars, og fer fram á þjónustugátt Garðabæjar. Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.

Nemendur sem stunda nám fyrir utan sitt lögheimilissveitafélag
Vakin er athygli á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum fyrir skólaárið 2025-2026 er til 1. apríl. Umsóknir fyrir nemendur sem stunda nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Garðabæjar. Það sama gildir fyrir nemendur með lögheimili utan Garðabæjar sem stunda nám í Garðabæ, sækja þarf um skólavist utan sveitarfélags hjá lögheimilissveitarfélagi nemandans.

Til baka
English
Hafðu samband