Nýjar skólareglur Flataskóla eru í vinnslu
Í tengslum við forvarnarviku Garðabæjar erum við í Flataskóla að endursemja skólareglur Flataskóla. Við byggjum nýju reglurnar á barnasáttmála sameinuðu þjóðanna. Réttindaráð skólans hélt fund 4.10 og valdi greinar úr barnasáttmálanum sem þeim finnst skipta máli að nota við gerð skólareglna. Réttindaráðinu var skipt í tvo hópa og hvor hópur fékk allar greinar sáttmálans í hendur og þau lásu greinarnar fyrir hvert annað og skýringuna á bak við hverja grein og veltu fyrir sér hvort þær ættu við í skólareglum. Áhersla var lögð á það að þær greinar sem ekki verða nýttar í vinnunni eru jafnmikilvægar og hinar þó þær passi ekki í skólaregluvinnu.
Greinarnar sem réttindaráð valdi eru:
7.gr Nafn og ríkisfang
3. gr Það sem barninu er fyrir bestu
31. gr Hvíld, leikur, menning og listir
2. gr Öll börn eru jöfn
13. gr Frelsi til að deila hugmyndum sínum
29. gr Markmið menntunar
15. gr Félagafrelsi
19.gr Vernd gegn ofbeldi
24. gr Heilsuvernd, matur, umhverfi
12. gr Virðing fyrir skoðunum barna
Föstudaginn 7.10. munu svo 35 nemendur úr öllum árgöngum vinna saman í sjö hópum við að skilgreina hvað það þýðir fyrir starfið í skólanum að þessi réttindi barna þurfi að virða. Að lokum munu umsjónarkennarar vinna með sínum nemendum að því að skilgreina hvað hver nemenadi þarf að gera til að þau réttindi sem nemendur eiga verði virt.
Mikilvægt er að vera meðvitaður um að réttur hvers barns endar þar sem réttur þess næsta byrjar.