Dagskrá í desember

13. des. Jólapeysudagur – Allir nemendur og starfsmenn hvattir til að koma í jólapeysum eða einhverju jólatengdu.
19. des. Síðasti kennsludagur fyrir jólaleyfi. Nemendur í 5. bekk sýna helgileik. Jólamatur í matsal, þeir sem ekki eru í áskrift geta keypt matarmiða á 600 kr. hjá starfsmönnum Skólamats (eru seldir til 13. des.).
20. des. Jólaskemmtun og litlu jól í bekkjastofum.
- Kl. 9:00 -10:30 1., 2., og 6. bekkur
- Kl. 9:30 -11:00 4 og 5 ára, 4. og 7. bekkur
- Kl. 10:00-11:30 3. og 5. bekkur
Börnin mæta aðeins á jólaskemmtunina. Engin kennsla þann dag.
Krakkakot opnar kl. 10:30 fyrir þau börn sem þar eru skráð og opið er í 4 og 5 ára bekk.
Önnur börn fara heim að lokinni jólaskemmtun.
Dagana 23., 27. og 30. desember og fimmtudaginn 2. janúar er opið í Krakkakoti og 4 og 5 ára bekk.
Skólastarf hefst aftur að loknu jólaleyfi grunnskólans föstudaginn 3. janúar 2020 samkvæmt stundaskrá.