Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lífshlaupið hefst

06.02.2013
Lífshlaupið hefst
Í morgun var Landskeppnin í hreyfingu - Lifshlaupið sett af stað í hátíðarsal Flataskóla. Allir nemendur skólans mættu með kennurum og starfsfólki í hátíðarsalinn. Þar mættu einnig Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Gunnar Einarsson bæjarstóri Garðabæjar, Geir Gunnlaugsson landslæknir, Ólafur Rafnsson forseti Íþróttasambands Íslands og fleiri aðstandendur Lífshlaupsins.
Eftir nokkur orð frá gestunum og skólastjóra voru fjórir knáir íþróttamenn krýndir platínuorðu fyrir að hafa hreyft sig daglega allt árið. Nemendur sungu síðan lögin um Jóa útherja og Á skíðum skemmti ég mér undir stjórn Jóns Bjarna tónmenntakennara skólans.
Samkomunni lauk síðan með keppni milli tveggja liða sem voru skipuð þeim Katrínu mennta- og menningarmálaráðherra, Ólöfu skólastjóra, Rögnu kennara í 3. bekk, Gunnari bæjarstjóra, Geir landlæknis, Hafsteini Pálssyni frá ÍSÍ og sex nemendum úr 7. bekk. Keppt var í dekkjahlaupi, sippi og armbeygjum. 

Þótti gestum mikið til athyglismerkis Flataskóla koma og kom fram áskorun til mennta- og menningarmálaráðherra um að innleiða það á Alþingi.

Flataskóli var sigurvegari í Lífshlaupinu í fyrra bæði í flokki nemenda og starfsfólki og er að sjálfsögðu stefnt á að sigra í báðum flokkum aftur.

Hægt er að skoða myndir frá athöfninni í myndasafni skólans.


Til baka
English
Hafðu samband