Flataskóli hlaut viðurkenningu frá UNICEF sem réttindaskóli.
Í lok þemadaga 25.11. tók réttindaráð Flataskóla við viðurkenningu frá Unicef um að eftir úttekt þá höfum við rétt á að kalla okkur áfram réttindaskóla Unicef. Það var vel við hæfi að hafa athöfnina í lok þemadaga sem voru með yfirskriftinni "við erum öll jöfn" sem er bein vísun í 2. grein barnasáttmálans.
Seinni þemadaginn var öllum nemendum skólans blandað tilviljanakennt í 12-13 barna hópa sem unnu allir það sama undir leiðsögn kennara. Farið var m.a. í ratleik um barnasáttmálann úti á skólalóð, farið var í nafnaleik, teiknaðar voru sjálfsmyndir og unnið var með það hvað við erum öll eins þó við séum ólík.
Á viðurkenningarathöfninni kynntu fulltrúar nemenda vinnuna sem fram fór fyrri þemadaginn. Nemendur stóðu sig mjög vel við að lýsa því hvað vinabekkir höfðu unnið og hvernig það tengdist annarri grein barnasáttmálans.
Við þökkum fyrir okkur og hlökkum til að halda áfram að vinna að réttindum barna og að kynna þau fyrir nemendum.