Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning - nemendur mæta beint í kennslustofur

20.08.2021
Skólasetning - nemendur mæta beint í kennslustofur

Skólasetning í Flataskóla verður þriðjudaginn 24. ágúst. Nemendur mæti beint í sínar kennslustofur á eftirfarandi tímum: 

  • Kl. 9:00 - 2. og 3. bekkur
  • Kl. 10:00 - 4. og 5. bekkur
  • Kl. 11:00 - 6. og 7. bekkur

Hér til hliðar er mynd sem sýnir innganga í húsið, hægt er að smella á myndina til að stækka hana. 
Skólasetningin tekur um 40 mínútur og fara nemendur heim að henni lokinni.
Við hvetjum forráðamenn nýrra nemenda til að fylgja þeim á skólasetninguna og fá stutt samtal við umsjónarkennara að henni lokinni.
Við mælumst til að aðrir nemendur komi án foreldra nema að sérstakar aðstæður kalli á annað.

Nemendur í 1. bekk fá tölvupóst og verða boðaðir til samtals ásamt foreldri dagana 23. eða 24. ágúst.
Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá að morgni miðvikudagsins 25. ágúst og frístundaheimilið Krakkakot opnar þann dag. 

Hér má finna fréttabréf með helstu upplýsingum varðandi skólabyrjunina
 
Gleðilegt nýtt skólaár! 

Til baka
English
Hafðu samband