Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

100 miða leikur hófst í dag

07.11.2016
100 miða leikur hófst í dag

100 miðaleikur stendur núna yfir í tvær vikur. Hann hófst í morgun og gengur út á að á hverjum degi fá tveir starfsmenn fimm sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að veita nemendum þá fyrir að fara sérstaklega vel eftir siðum Flataskóla. Þegar nemandi hefur fengið þennan hrósmiða fer hann til ritara með hann og dregur númer hjá honum til að staðsetja sig á "bingóspjaldinu" sem hangir á hurð við skrifstofuna. Ritari skráir hjá sér hvar nemendur lenda á "bingóspjaldinu". Tölvupóstur er sendur til foreldra og þeim tilkynnt að barnið þeirra hafi fengið hrósmiða fyrir rétta hegðun og sé þar með orðið þátttakandi í leiknum. Áður en leikurinn byrjar er ákveðið hver sé vinningsröðin og einnig hvaða umbun verður fyrir þá röð. Algjör leynd hvílir yfir þessu og verða úrslit tilkynnt í lok leiksins og umbunin veitt í framhaldi af því.

 

Til baka
English
Hafðu samband