Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning 2014

25.08.2014
Skólasetning 2014

Í dag komu nemendur í skólann í fyrsta sinn á þessu skólaári. Ekki var annað að sjá en að eftirvænting og gleði yfir að hitta skólafélagana og kennarana aftur ríkti meðal nemenda. Nánast allir nemendur komu í fylgd foreldra sinna og komu þeir í þremur hópum um morguninn á klukkustundar fresti. Talsverð fjölgun er í skólanum þetta haustið, bæði meðal nemenda og starfsfólks en fjöldi nemenda nálgast nú að vera um 360 og starfsfólkið um 50. Í skólastarfinu í vetur verðu lögð mikil áhersla á hreyfingu nemenda og er stundaskráin aðlöguð að því eins og hægt er. Skólastarfið hefst svo samkvæmt stundaskrá á morgun. Myndir frá skólasetningunni er að finna á vefsíðu skólans.

Til baka
English
Hafðu samband