Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sveinbjörn ferðabangsi

27.01.2010
Sveinbjörn ferðabangsiNú er hann Sveinbjörn ferðabangsi búinn að ferðast víða undanfarið.  Hann er meðal annars búinn að fara til útlanda eða til Danmerkur. Einnig fór hann vestur á land til Stykkishólms og síðan norður á land til Akureyrar.  Honum finnst mjög gaman að fá að ferðast með krökkunum og kynnast þeim og nú bíður hann eftir að einhver komi og bjóði honum með sér í næstu ferð. Hér er hægt að lesa um ferðalögin hans og sjá hvert hann hefur farið og með hverjum. En krakkarnir eru svo duglegir að skrifa okkur myndskreyttar ferðasögur og senda þær á Ingibjörgu á bókasafninu svo hægt sé að setja þær á vefsíðuna okkar til að aðrir geti líka lesið þær.
Til baka
English
Hafðu samband