Látum gott af okkur leiða
Í dag lauk formlega góðgerðarverkefninu okkar "Látum gott af okkur leiða". Vel gekk að safna mat í síðustu viku og sendum við fullan sendiferðarbíl til Mæðrastyrksnefndar. Það var faðir tveggja barna við skólann sem kom og flutti þetta fyrir okkur. Fulltrúi nefndarinnar Anna H. Pétursdóttir kom í morgunsamveru í morgun og þakkaði börnunum fyrir dugnaðinn. Við efumst ekki um að matvælin koma sér vel og verði til að auðvelda einhverjum jólahaldið. Við þökkum ykkur öllum fyrir þátttökuna, þetta var gott og gefandi verkefni.