Skólabyrjun 2019
07.08.2019
Skólastarf hefst að loknu sumarleyfi með skólasetningu föstudaginn 23. ágúst og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá mánudaginn 26. ágúst.
- Kynningarfundur fyrir foreldra barna í 4 og 5 ára verður þriðjudaginn 20. ágúst kl. 17:00
- Kynningarfundur fyrir nýja nemendur í 2. – 7. bekk og foreldra þeirra verður miðvikudaginn 21. ágúst kl. 16:30
- Kynningarfundur fyrir foreldra barna sem byrja í 1. bekk verður miðvikudaginn 21. ágúst kl. 18:00.
Skólasetning verður föstudaginn 23. ágúst. Nemendur mæta í hátíðarsal skólans og eru foreldrar hvattir til að fylgja börnum sínum á skólasetninguna
- Kl. 9:00 2. og 3. bekkur
- Kl. 10:00 4. og 5. bekkur
- Kl. 11:00 6. og 7. bekkur
Nemenda- og foreldarviðtöl verða í 4 og 5 ára bekk og 1. bekk föstudaginn 23. ágúst
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 26. ágúst og þá opnar tómstundaheimilið Krakkakot.