Gjörhygli í 6. bekk
05.10.2015
Nemendur í 6.bekk fá einu sinni í viku gjörhygli á stundaskrána sína.Tímarnir eru byggðir upp á einföldum jógaæfingum til að tengja saman hug og líkama. Þeir fara í gegnum öndunar- og teygjuæfingar og enda tímann á slökun þar sem þau nota öndun og hugann til að öðlast hugarró og einbeita sér að stað og stund sem er núna. Nemendur hafa verið einstaklega jákvæðir og tilbúnir til þess að taka á móti þessari nýjung hjá okkur.
Helstu markmið með tímunum eru að nemendur:
- tengi saman líkama, hug og sál
- tileinki sér jákvætt hugarfar
- geti verið í núinu, gleymt stund og stað og slakað á
- læri að tileinka sér öndun sem hluta af slökun, hugarró
- læri að útiloka neikvæðar tilfinningar og hugsanir
Ljósmyndari leit við í tíma hjá Lindu og krökkunum og fangaði eftirfarandi augnablik sem sjá má í myndabandinu hér fyrir neðan.