Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Morgunstund með 3. bekk

08.03.2011
Morgunstund með 3. bekk

Nemendur í þriðja bekk hafa á haustönn unnið verkefni um sólkerfið okkar. Árgangurinn vann í hópum með reikistjörnurnar átta, sólina og tunglið. Nemendur bjuggu til líkan af sólkerfinu og skreyttu ganga skólans.
Hóparnir komu á skólasafnið og öfluðu upplýsinga um stjörnurnar og tunglið. Þeir skráðu upplýsingarnar á glærur og fundu myndir á Netinu sem hæfðu efninu. Foreldrum var boðið á kynningu þar sem nemendur sýndu afraksturinn.

Til baka
English
Hafðu samband