Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning

14.08.2023
Skólasetning
Skólasetning Flataskóla verður miðvikudaginn 23. ágúst. Þar sem hátíðarsalur skólans er ekki tilbúinn taka umsjónarkennarar á móti nemendum í þeirra heimastofum fyrir utan að þriðji bekkur mætir á bókasafn skólans.
Nemendur mæta hér og á eftirfarandi tímum:

2. og 3.bekkur kl. 08:30
2. bekkur mætir  á 2. hæð í norðurálmu skólans ( gengið inn í norðurálmu)
3. bekkur mætir  á bókasafn skólans  ( gengið inn um aðalinngang)

4. og 7. bekkur kl. 09:10  
4. bekkur mætir í stofur í miðálmu skólans ( gengið inn um aðalinngang)
7. bekkur mætir í Austurálmu skólans ( gengið inn um inngang við austurálmu)

5. og 6. Bekkur kl. 09:40  
5. bekkur mætir á efri hæð vesturálmu skólans ( gengið inn um aðalinngang)
6. bekkur mætur á neðri hæð í vesturálmu skólans ( gengið inn um aðalinngang)


Skólasetningin tekur um 30 mínútur og fara nemendur heim að henni lokinni.

Við biðjum forráðamenn nýrra nemenda í 2.-7. bekk um að fylgja þeim á skólasetninguna og fá stutt samtal við umsjónarkennara og kynningu á skólanum að henni lokinni.

Frístundaheimilið Krakkakot er lokað á skólasetningardaginn.

Forráðamenn nemenda í 1. bekk fá tölvupóst og verða ásamt börnum sínum boðaðir til samtals við umsjónarkennara á skólasetningardaginn.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 24. ágúst og þá opnar frístundaheimilið Krakkakot.
Til baka
English
Hafðu samband