Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

 Í Flataskóla er áhersla lögð á gott stuðningsnet við nemendur. Kennsla er skipulögð með ýmsum hætti til að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda m.a.:
  • Fjölbreytta kennsluhætti til að koma til móts við þarfir hvers og eins
  • Færnimiðað nám í markvissri málörvun og lestri
  • Lotukennsla í list- og verkgreinum
  • Misstórir námshópar
  • Samvinna innan árgangs og milli árganga
  • Sérkennsla nemenda samkvæmt greiningu sérfræðinga og greinandi skimunarprófum, ábendingum ýmissa aðila, svo sem leikskólakennara, talmeinafræðings, kennara, deildarstjóra og foreldra. 
English
Hafðu samband