Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

PMTO námskeið fyrir foreldra 4 – 12 ára barna haustið 2021

10.09.2021

PMTO  hópmeðferð  (PTC)fyrir foreldra barna með samskipta og hegðunarerfiðleika verður haldið í Garðabæ á  miðvikudögum  kl. 16:30 – 18:00  í alls 10  skipti haustið 2021.

 Námskeiðið hefst  6. október  og lýkur 8. desember 2021.

Þátttökugjald er  15.000 kr. fyrir fjölskyldu?  Innifalið eru námskeiðsgögn og veitingar.

Gert er ráð fyrir að báðir foreldrar komi á námskeiðið. Lágmarksþátttaka þarf að vera (7 fjölskyldur) svo námskeiðið verði haldið. Verði þátttaka yfir 10 fjölskyldur verður gerður biðlisti.

PMTO stendur fyrir Parent Management Training – Oregon aðferð, er sannprófað meðferðarprógramm ætlað foreldrum barna með hegðunarerfiðleika. Úrræðið hentar foreldrum barna á leik -og grunnskólaaldri.  Rannsóknir hafa leitt í ljós að PMTO dregur úr hegðunarerfiðleikum barns á heimili og hefur auk þess jákvæð áhrif á samskipti innan fjölskyldu og frammistöðu barns í námi.

Lögð er áhersla á vinnu með verkfærum PMTO og sveigjanleika til að mæta þörfum hverrar fjölskyldu. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðari hegðun barns og draga úr hegðunarvanda. Foreldrar vinna heima á milli tíma.

Á námskeiðinu er m.a farið í eftirfarandi þætti;

  • Nota skýr fyrirmæli
  • Hvetja börn til jákvæðrar hegðunar
  • Setja mörk
  • Efla virk samskipti innan fjölskyldu
  • Vinna með tilfinningar og samskipti
  • Hafa markvisst eftirlit
  • Leysa ágreining

 

Upplýsingar og skráning :

Skráning fer fram í gegnum „Minn Garðabær“ á eyðublaði innan 05. Félagsþjónusta, merkt PMTO foreldrafærni.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október

Svar um pláss á námskeiði verða send 1.-4. október 2021

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða  Berglind B. Sveinbjörnsdóttir  uppeldisfræðingur   Fjölskyldusvið Garðabæjar  og Margrét H. Þórarinsdóttir sérkennslufulltrúi og PMTO meðferðaraðili Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar.

Hægt er að hafa samband við námskeiðshalda fyrir frekari upplýsinga í sími 525-8500

Til baka
English
Hafðu samband