Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Uppskeruhátíð vinaliða

05.12.2017
Uppskeruhátíð vinaliða

Í dag fengu vinaliðar sem stýrt hafa leikjum á skólalóðinni á haustönn umbun fyrir vel unnin störf í skólanum. Þeim var boðið í bíó og pizzu í Smáralindina og enduðu svo daginn á því að fara í fimleikasalinn. Þau Erna og Hannes sem halda utan um verkefnið hér í skólanum fóru með vinaliðunum. Nýir vinaliðar taka svo til starfa í janúar. Við þökkum þessum frábæru nemendum fyrir vel unnin störf. Myndir eru komnar í myndasafn skólans. 



Til baka
English
Hafðu samband