Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kynningarfundir og opið hús þriðjudaginn 7. mars

27.02.2017
Kynningarfundir og opið hús þriðjudaginn 7. mars

Börn sem hefja nám í 1. bekk næsta haust og foreldrar þeirra eru velkomnir í Flataskóla til að kynna sér starfið. Opið hús verður í skólanum þriðjudaginn 7. mars klukkan 17:00. Áhugasamir eru einnig velkomnir á skólatíma. Hafið þá vinsamlegast samband á undan í síma 5133500.

Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að kynnast starfi í 5 ára bekk eru velkomnir á kynningarfund í skólanum sama dag klukkan 18:00.
Þeir eru einnig velkomnir á öðrum tíma en eru þá hvattir til að hafa samband áður í síma 5133500.



Til baka
English
Hafðu samband