Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann

21.09.2016
Göngum í skólann

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samstarfsaðilum setti Göngum í skólann í 10. sinn 7. september s.l. Á alþjóðavísu er "Göngum í skólann" mánuðurinn í október og Alþjóðlegi "Göngum í skólann" dagurinn er 5. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer "Göngum í skólann" verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega "Göngum í skólann" deginum þann 5. október n.k.
Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Um leið er ætlunin að: Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

Í Flataskóla verða unnin ýmis verkefni tengt þessu viðfangsefni. s.s. farið í gönguferðir á skólatíma, unnið með vegalengdir frá heimili í skóla og tengt verður við námsgreinar á borð við stærðfræði. Nemendur verða hvattir til að koma gangandi/hjólandi til skóla.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins "Göngum í skólann."

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hvernig kennarar í 3. bekk hvetja nemendur sína í þessu verkefni og halda utan um árangurinn.

Til baka
English
Hafðu samband