Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar

16.06.2016
Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar

 

Bókasafn Garðabæjar mun standa fyrir "Sumarlestri", sem hefst 10. júní, en það er lestrarhvetjandi verkefni fyrir grunnskólabörn í Garðabæ sem stuðlar að því að þau viðhaldi lestrarkunnáttu sinni yfir sumartímann og komi vel undirbúin í skólann í haust.

Öll börn eru hvött til að vera með og nýta sér hinn fjölbreytta bókakost sem safnið hefur upp á að bjóða, ekki síst meðan skólabókasöfnin eru lokuð. Dreginn verður út lestrarhestur vikunnar og fær hann bók í verðlaun og 18. ágúst verður haldin skemmtileg lokahátíð þar sem allir virkir þátttakendur munu fá glaðning fyrir að vera duglegir að lesa.

 

Bókamerki

 

Til baka
English
Hafðu samband