Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

100 miðaleikur á vorönn

09.03.2015
100 miðaleikur á vorönn

Í dag hófst 100 miðaleikurinn og mun hann standa yfir í tvær vikur eða fram til föstudagsins 21. mars. Leikurinn gengur út á að á hverjum degi fá tveir starfsmenn fimm sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að veita nemendum þá fyrir að fara sérstaklega vel eftir siðum Flataskóla. Þegar nemandi hefur fengið þennan hrósmiða fer hann til ritara sem dregur númer til að staðsetja nemandann á "bingóspjaldinu" sem hangir á vegg við skrifstofuna. Allt er skráð hver á hvaða númer. Tölvupóstur er sendur til foreldra og þeim tilkynnt að barnið þeirra hafi fengið hrósmiða fyrir rétta hegðun og sé þar með orðið þátttakandi í leiknum. Áður en leikurinn byrjar er ákveðið hvaða röð er vinningsröð og einnig hvaða umbun verður fyrir þá röð. Algjör leynd hvílir yfir þessu og verða úrslit tilkynnt í lok mars og umbunin veitt í framhaldi af því.

Til baka
English
Hafðu samband