Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Unnu þriðja árið í röð!

28.02.2014
Unnu þriðja árið í röð!

Í gær var ljóst eftir að skráningu lauk í lífshlaupinu að nemendur í Flataskóla hafa nú unnið þriðja árið í röð. Foreldrar hafa verið duglegir að senda kennurum upplýsingar um hreyfingu barna sinna og kennarar voru samviskusamir við að skrá það inn í lífshlaupið. Það voru stoltir nemendur sem fóru fyrir hönd félaga sinna að taka á móti viðurkenningunni í morgun. Fóru þeir í fylgd Hannesar íþróttakennara, Ólafar skólastjóra og Elínar deildarstjóra. 

Myndir frá viðurkenningunni er hægt að skoða í myndasafni skólans.

Til baka
English
Hafðu samband