Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Afmælishátíð Flataskóla

18.10.2013
Afmælishátíð Flataskóla

Í dag fagnaði Flataskóli 55 ára afmæli sínu. Haldið var upp á daginn með pönnukökuveislu, en í morgun mættu hér galvaskar fyrrverandi starfskonur Flataskóla og bökuðu um 700 pönnukökur. Eftir hádegið mættu allir í hátíðarsal skólans og sungu gamla skólasöngva og skoðuðu myndir frá skólastarfinu áður fyrr. Nemendur sáu þarna pabba og mömmur, frændur og frænkur og jafnvel afa og ömmur á gömlum myndum sem varpað var upp á stórt tjald í salnum. Eftir það fengu allir pönnukökur og djús áður en þeir fóru heim. Hátíðarbragur var í salnum því flestir mættu í sparifötunum sem gaf skemmtilegan svip á samkomuna.

Myndir eru í myndasafni skólans.

 

 
Til baka
English
Hafðu samband