Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frá 5 ára bekk

19.06.2013
Frá 5 ára bekk

Þriðjudaginn 11. júní komu allir í bekknum með hjól eða hlaupahjól í skólann. Þeir sem vildu skelltu sér í stuttan hjólatúr á göngustígunum í kringum skólann aðrir æfðu sig og léku sér á hjólum sínum á skólalóðinni. Var þetta ágæt tilbreyting og allir skemmtu sér konunglega.

Fimmtudaginn 13. júní fórum við í heimsókn á Árbæjarsafn. Þar tók Elías á móti okkur og fór með okkur yfir umgengnisreglurnar áður en hann sýndi okkur öll flottu, gömlu húsin sem þar er að finna. Eftir skemmtilega skoðunarferð fengum við okkur nesti og enduðum svo heimsóknina í "Landakoti" en þar má leika sér með dót frá fyrri tíma.

Myndir frá þessum atburðum er hægt að skoða í myndasafni skólans.

Til baka
English
Hafðu samband