Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Grænfáninn í þriðja sinn

24.04.2013
Grænfáninn í þriðja sinn

Í samverunstund í morgun var sérstök dagskrá í tilefni þess að Flataskóli fékk grænfánann afhentan í þriðja sinn fyrir það góða starf sem unnið hefur verið að í umhverfismálum í skólanum. Nemendafulltrúar í umhverfisnefnd fluttu ávarp, sungin voru tvo lög og Gerður Magnúsdóttir verkefnisstjóri grænfánaverkefnisins afhenti nemendafulltrúum í umhverfisnefnd nýja fánann.

Flataskóli hefur lengi verið umhverfisvænn skóli en á tveggja ára fresti þarf að endurnýja umsókn um grænfánann. Þá er gerð úttekt á umhverfisstefnu skólans og framkvæmd hennar. Síðustu árin verið unnið að ýmsum verkefnum í tengslum við umhverfismál. Áhersla hefur verið lögð á útikennslu, þátttöku nemenda í skipulagi skólastarfsins með því að halda skólaþing og að hafa öfluga umhverfisnefnd sem hittist reglulega. Þótt grænfáninn sé kominn í hús í þriðja sinn er ekki þar með sagt að nú verði slakað á í umhverfismálum því nú verða sett ný markmið til að vinna að því Flataskóli ætlar áfram að vera umhverfisvænn skóli. 

Flataskóli vill auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru lands og hafs. Hann vill stuðla að góðri umgengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum. Því er Flataskóli grænn skóli og tekur þátt í verkefninu skólar á grænni grein sjá http://www.landvernd.is/graenfaninn/ 

Gænfáninn var veittur skólanum fyrst árið 2008. Í skólanum var settur umhverfissáttmáli sem lýsir í stuttu máli heildarstefnu skólans í umhverfismálum og umhverfismennt og framtíðarsýn. Þegar Grænfáninn blaktir við hún er haldið áfram að vinna að umhverfismarkmiðum skólans og keppst er við til að skólinn fái Grænfánann endurnýjaðan á tveggja ára fresti en þá fer fram endurmat á stöðu umhverfismála.Grænfáninn var afhentur í annað skiptið við hátíðlega athöfn á Degi Íslenskrar tungu, 16. nóvember 2010.

 

Til baka
English
Hafðu samband