Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bleiki dagurinn á morgun

11.10.2012
Bleiki dagurinn á morgun

Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni ætlum við í Flataskóla að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 12. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni. Við hvetjum fólk því til að njóta saman dagsins á skemmtilegan hátt og vekja um leið athygli á árveknisátakinu.

Klæðumst bleiku til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum!

null

Til baka
English
Hafðu samband