Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinavika í skólanum

03.09.2012
Vinavika í skólanum

Fyrsta vikan hjá okkur í fyrsta bekk er liðin og var hún sérlega skemmtileg. Við enduðum þessa góðu viku á því að fá í heimsókn nemendur úr vinabekkjum okkar í 5. EÞ og 5. EÁ. Það var spilað og spjallað saman og mikil gleði var í loftinu. Við fengum líka 7. HG í heimsókn sem gáfu okkur vinabönd sem þau höfðu búið til fyrir okkur og buðu okkur velkomin í skólann. Myndir eru í myndasafni skólans.

Til baka
English
Hafðu samband