Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Flokkun sorps

03.09.2012
Flokkun sorpsÍ gær kom starfsfólk frá Íslenska gámafélaginu og fór yfir með nemendum og starfsfólki Flataskóla hvernig ætti að flokka sorp. Skólinn ætlar nú frá byrjun skólaársins að flokka allt sorp sem leggst til í ákveðna flokka og þannig leggja drög að því að nemendur kynnist þessu sem sjálfsögðum hlut og fái jafnvel aðra í lið með sér t.d. fjölskyldu sína. Farið var yfir með nemendum hvað ætti að fara í hvern flokk og má nánar lesa um það á vefsíðu gámafélagsins. Nemendur skólans fengu hrós frá gestunum fyrir hve still og prúð þau voru í kynningunum.

Myndir frá heimsókninni eru í myndasafni skólans.
Til baka
English
Hafðu samband