Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vorferð 4. bekkja

27.05.2011
Vorferð 4. bekkja

Mánudaginn 23. maí fóru nemendur og kennarar 4. bekkja í vorferð upp á Akranes. Markmið ferðarinnar var að sækja sér fróðleik á Safnasvæði Akranes. Safnasvæðið hefur á undanförnum árum skipað verðugan sess sem eitt helsta aðdráttarafl Akraness. Það er skemmtileg upplifun að koma þangað, jafnvel fyrir þá sem hafa annars ekkert gaman af söfnum. Safnasvæðið samanstendur af: Byggðasafninu í Görðum, Íþróttasafni Íslands og Steinaríki Íslands. Þarna var margt að sjá og allir skemmtu sér konungslega og fræddust um marga athyglisverða hluti.

Myndir úr ferðinni.

Til baka
English
Hafðu samband