Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak 4. bekkjar

17.10.2009
Lestrarátak 4. bekkjar

Lestrarátaki í 4. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun átaksins um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Allir náðu þessu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu reiknað með.

Útbúin var bókahilla úr maskínupappír á gluggavegg skólasafnsins til að halda utan um hvaða bækur nemendur lásu. Nemendur skráðu síðan heiti bókanna sem þeir lásu og blaðsíðufjöldann á pappírsræmur sem litu út eins og bækur í bókahillunni.

Skólasafnið veitti öllum nemendum árgangsins viðurkenningaskjöl fyrir frábæran árangur. Lestrarátakið tókst í alla staði mjög vel og lásu nemendur gríðarlega mikið á þessari einu viku eða tvöfalt meira en í lestrarátaki síðasta árs.

Nokkrir nemendur lásu upp úr skemmtilegum bókum áður en lestrarbikar og viðurkenningarskjöl voru afhent og vakti upplesturinn áhuga margra nemenda.
Vonandi halda allir áfram að lesa mikið því góð lestrarkunnátta er undirstaða fyrir góðum námsárangri.

Til baka
English
Hafðu samband