Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bekkjarmynd og næstu dagar

15.10.2009
 

Kæru foreldrar.

Í dag fá nemendur bekkjarmyndirnar og einstaklingsmyndirnar heim til að sýna þær. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag er að finna á miða sem fer með myndunum heim. Sé myndanna ekki óskað, vinsamlega sendið þær þá aftur í skólann.

Í næstu viku verður könnun í stærðfræði (mánudag) og stafsetningu (miðvikudag)-  (gildir sem hluti af miðsvetrareinkunn) – sjá nánar á heimasíðu 5. bekkja.

Mánudaginn 26. október verða foreldraviðtöl í Flataskóla og fá nemendur tímasetningu fyrir viðtalið með heimavinnunni í dag – Vinsamlega sendið miðann aftur í skólann með upplýsingum um hvort þið munið mæta fyrir þriðjudaginn 20. október.

Kveðja, Auður, Hanna Lóa og Kristín Ósk.

Til baka
English
Hafðu samband