Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nemendur í 7. bekk unnu Flatóvision með laginu Dönsum burtu blúes.

Flatóvisionhátíðin var haldin í skólanum í áttunda sinn þann 11. mars s.l. en þetta verkefni hefur verið árlegur viðburður í skólastarfinu frá 2009. Keppnin er haldin til þess að finna lag í eTwinningverkefnið Schoolovision sem er evrópst samskiptaverkefni sem skólinn tekur þátt í ásamt um 40 öðrum skólum. Sigurlag Flatóvision að þessu sinni var lagið "Dönsku burtu blúes" sem hljómsveitin StopWaitGo lagði fram í sjónvarpskeppni útvarpsins fyrir nokkrum árum. Sjöundi bekkur flutti lagið og samdi dans- og fimleikaatriði sem sýnd voru undir flutningi lagsins. Í Flatóvision fá nemendur úr 4. til 7. bekk að koma með atriði (lag og dans) sem þau velja sjálf og æfa (með tilliti til reglna sem settar eru hverju sinni) og hefð hefur einnig skapast fyrir því að nemendur í yngri bekkjum koma með skemmtiatriði. Utanaðkomandi dómarar að þessu sinni voru leikkonan Þórunn Erna Clausen og söngkonan Alda Dís Arnardóttir. Einnig komu nemendur úr Garðaskóla og fyrrum nemendur í Flataskóla þau Viktor Ingi og Elín Helga og starfsmenn skólans þær Svanhvít og Jóna.

Myndir frá hátíðinni er hægt að skoða í myndasafni skólans.

 Til baka

English
Hafðu samband