Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skrifstofa skólans er opin:

Mánudaga  fimmtudaga frá kl: 7:45 – 15:00.

Föstudaga frá kl. 7:45-14:30

Skrifstofustjóri Flataskóla er  Ásta Ragna Stefánsdóttir

Mælst er til að foreldrar/aðstandendur skrái veikindi nemenda á Fjölskylduvef Mentor.is eða með Mentor appinu.

Auk þess er hægt að tilkynna forföll á skrifstofu skólans með tölvupósti eða í síma 513 3500. Vakin er athygli á að ef veikindi vara lengur en einn dag skal tilkynna daglega.

Að koma skilaboðum áleiðis til kennara
Foreldrum er velkomið að senda kennurum skilaboð með tölvupósti. Þeir geta hins vegar ekki vænst þess að fá svar fyrr en í lok dags eða næsta dag. Ef um áríðandi skilaboð til kennara er að ræða er best að senda nemandann með miða sem hann afhendir kennaranum. Hægt er að hafa samband við skrifstofustjóra í  síma eða með tölvupósti sem kemur skilaboðum til kennara. Símtöl eru ekki gefin inn í kennslustundir.
Þurfi foreldrar að sækja barn sitt áður en skóla lýkur er mælst til þess að þeir komi inn og sæki barnið


English
Hafðu samband