Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Flataskóli tekur nú fimmta árið í röð þátt í verkefninu Schoolovision.  Í fyrra sendum við lagið "Stattu upp" sem strákarnir í Bláum Ópal lögðu fram í sjónvarpskeppninni um Eurovision-lag Íslands sama ár. Strákarnir í 4. bekk sungu þetta lag og unnu í Flatóvisionkeppninni í fyrra en sú keppni  er haldin sem undankeppni fyrir Schoolovision.

Nánari upplýsingar er að finna á bloggsíðum verkefnisins frá fyrri árum.
Schoolovision bloggsíða 2009
Schoolovision bloggsíða 2010
Schoolovision bloggsíða 2011 
Schoolovision bloggsíða 2012
Schoolovision bloggsíða 2013

Á þessari síðu er fjallað um Scholovision (á ensku) út frá Eurovision vegna keppninnar í Svíþjóð 2013. 

Eins og undanfarin ár höldum við Flatóvision að þessu sinni að hætti Eurovision föstudaginn 15. mars 2013, þar sem nemendur í 4. til 7. bekk geta komið með eigið framlag. Það lag sem vinnur verður sent í Schoolovision 2013 sem er samskiptaverkefni á eTwinning-netinu meðal rúmlega 30 skóla í Evrópu.

Reglur keppninnar í ár eru nánast þær sömu og í fyrra en þær eru:

  1. Velja má söng/dans að eigin vali og það má syngja á hvaða tungumáli sem er. Það má vera þekkt lag, þjóðlag eða lag sem nemendur búa til sjálfir, lag sem enginn hefur heyrt áður. Lagið þarf að tengjast landinu á einhvern hátt. Lag þarf að vera eftir íslenskan höfund. Textinn getur t.d. verið um vináttu, umhverfismennt, frið, fólk o.s.frv. 
  2. Ef lagið sem verður valið er verndað með höfundaleyfi þá þarf að fá leyfi höfundar til að setja lagið í Schoolovision. 
  3. Undirleikur má vera leikinn af nemendum, af CD-diski eða af foreldrum/kennurum. 
  4. Enginn hjálparsöngur né bakraddir mega vera í upptökunni. Nemendur verða að syngja allt lagið sjálfir. 
  5. Klæðnaður á sviði skal vera við hæfi níu til 12 ára barna. 
  6. Æfingar í sal byrja mánudaginn 11. mars. Ekki er gefið leyfi til að vera inni í frímínútum til að æfa fyrir þann tíma. 
  7. Staðfesta þarf hjá Jóni Bjarni eða Kolbrúnu hvaða lög verða flutt á Flatóvision fyrir 5. mars (þriðjudagur)

Þetta er framlag 6.OS til að senda í Schoolovisionkeppnina 2013 eða lagið "Little Talks" með hljómsveitinni "Of Monsters and Men".  Nemendur unnu við upptökur og val á efni við gerð myndbandsins undir leiðsögn Kolbrúnar og Jóns Bjarna. Einnig nutu þeir leiðsagnar Gunnars Guðmundssonar leikstjóra og Jógvan Hansen við framsögn og framkomu á sviði.

 

Á bloggsíðu Schoolovision 2013 er að finna frekari upplýsingar og ýtarlegri umfjöllun um reglurnar (á ensku).

English
Hafðu samband