Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Flatóvision 2010

Flatóvision hefur nú verið haldið í annað sinn í Flataskóla, en þetta verkefni tengist samskiptaverkefninu Schoolovision sem skólinn er fulltrúi í fyrir hönd Íslands. Í Flatóvision fá nemendur að koma með sitt framlag sem þau velja sjálf og æfa. Þau syngja og dansa og koma síðan fram fyrir fimm dómara sem valdir eru sérstaklega á hverju ári. Að þessu sinni voru gestadómarar þau Victor Hugo, tónmenntakennari í Reykjanesbæ og Regína Ósk, söngkona, Ásta Lára Magnúsdóttir og Pétur Geir Magnússon úr nemendaráði Garðaskóla. Að auki vour þær Hjördís Ástráðsdóttir, tónmenntakennari og Halla Guðmundsdóttir, kennari, báðar frá Flataskóla.

Sjö hópar kepptu að þessu sinni og voru tveir hópar frá hverjum árgangi í 5. - 7. bekk og einn hópur úr 4. bekk. Sá hópur sem sigraði voru níu stúlkur úr 5. bekk sem sungu ABBA lagið "Dancing Queen". Annars var samdóma álit þeirra sem voru á hátíðinni að atriðin hefðu verið afar góð og góður og skemmtilegur bragur hefði einkennt bæði keppendur og áheyrendur. Hér má sjá myndir úr Flatóvision 2010.

5. bekkur

 

7. bekkur

 

6. bekkur

 

5. bekkur

5. bekkur

4. bekkur

7. bekkur

6. bekkur



English
Hafðu samband