Almannavarnaáætlun um heimsútbreiðslu inflúensu
Hér er að finna viðbragðsáætlun sem segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í Flataskóla, í samræmi við áætlun Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu. Markmið viðbragðsáætlana skóla er að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana sem og starfsmanna þeirra ef til inflúensufaraldurs kemur.
Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997. Áætlunin er í samræmi við Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu.
Viðbragðsáætlanir skóla hafa samræmda uppbyggingu. Kaflar 2, 3, 4 og 7 eru sameiginlegir og geyma almennar upplýsingar frá menntamálaráðuneyti, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti sóttvarnalæknis. Aðra kafla semja skólarnir sjálfir og mynda þeir hina eiginlegu viðbragðsáætlun hvers skóla.
Ábyrgð á viðbragðsáætluninni er í höndum skólastjóra Flataskóla. Áætlunin verður endurskoðuð á a.m.k. fimm ára fresti, en yfirfarin árlega, t.d. hvað varðar boðleiðir, gátlista og starfssvæði skóla. Ef miklar breytingar verða á starfsemi skólans verður áætlunin þegar í stað endurskoðuð.