Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Móttaka nýrra nemenda

Í Flataskóla er lögð áhersla á að taka vel á móti nýjum nemendum. Mikilvægt er að nemandinn og forráðamenn hans fái strax í upphafi jákvæða mynd af skólanum. Þegar nýr nemandi er skráður í skólann er honum og forráðamönnum hans boðið að koma í heimsókn í skólann. Stjórnendur taka á móti þeim og kynna skólastarfið og sýna þeim húsnæðið.

Hér fyrir neðan er krækja með upplýsingum um móttöku nemenda með annað móðurmál en íslensku.

Nemandi byrjar að hausti

Haldin er sérstakur mótttökufundur fyrir nýja nemendur í ágúst nokkru fyrir skólasetningu. Þar eru ný börn og forráðamenn þeirra boðin velkomin, skólastarfið kynnt og húsnæðið skoðað. Bæði kennarar, stjórnendur og nokkrir eldri nemendur sjá um þessa mótttöku. Námsráðgjafi skólans hittir nýja nemendur einhvern af fyrstu skóladögunum og gætir að líðan þeirra. Umsjónarkennarar fylgjast vel með nýjum nemendum og fá bekkjarfélaga til að styðja nýja barnið bæði innan skólastofu og í útivist. Umsjónarkennarar eru beðnir um að hafa samband við heimili nýrra nemenda þegar ein til tvær vikur eru liðnar af skólatímanum. Þá gefst tækifæri til að ræða líðan nemandans og upplifun hans og foreldra af skólanum.

Nemandi byrjar á miðjum vetri

Nemandi mætir ásamt foreldrum sínum og hittir stjórnanda. Farið er yfir skólastarfið og húsnæðið skoðað. Litið er við í umsjónarbekk barnsins og umsjónarkennari kynntur. Umsjónarkennari mælir sér síðan mót við forráðamenn og nemanda varðandi skólabyrjun. Umsónarkennari þarf við upphaf skólagöngu nýrra nemenda að:
  • Afla upplýsinga frá foreldrum um nemandann almennt, námsgengi (m.a. athuganir og greiningar) félagslega stöðu, skólagöngu hingað til, heilsufar, trúarbrögð, tengsl við aðra nemendur í skólanum o.s.frv. Ef eitthvað er athugavert við heilsu nemandans skal umsjónarkennari foreldrum á að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing. Umsjónarkennari fylgist með því að þær upplýsingar komist til skila.
  • Gefa foreldrum kost á að koma í skólann ásamt nemandanum til að fara yfir starfið
  • Afhenda foreldrum og nemanda stundatöflu og allar helstu upplýsingar
  • Gera nemanda og foreldrum grein fyrir skólastefnu og vinnuvenjum í skólanum.
  • Veita upplýsingar um almenn atriði eins og viðtalstíma, nestismál, klæðnað í íþróttum, tilkynningar um forföll, beiðnir um leyfi o.s.frv.
  • Fara yfir skólareglur með foreldrum og nemanda.
  • Skipa nemandanum í viðeigandi hóp í smiðjuhópum og láta annað starfsfólk vita af nýjum nemanda.
  • Segja bekkjarfélögum frá komu nýs nemanda og virkja þá til að leiðbeina honum og auðvelda aðlögun í skólanum.
  • Sjá um í samráði við húsvörð að húsgögn séu til staðar fyrir nemandann.
Móttaka nemenda með annað móðurmál en íslensku
English
Hafðu samband