Starfsfólk skólans
Alvarleg veikindi starfsmanns skólans:
• Skólastjóri/áfallaráð ákveður í samráði við viðkomandi starfsmann hvernig tilkynna skuli nemendum veikindin.
Alvarleg slys starfsmanns skólans:
• Áfallaráð ákveður í samráði við viðkomandi starfsmann eða aðstandendur hans hvernig tilkynna skuli nemendum slysið.
Andlát starfsmanns:
• Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.
• Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið.
• Skólaritari skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru.
• Gæta þarf að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann fái fregnina sérstaklega en ekki yfir hópinn.
• Áfallaráð fundar um hvernig tilkynna eigi nemendum andlátið.
• Ef umsjónarkennari fellur frá tilkynnir skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði og sóknarpresti umsjónarbekk andlátið og hlúir að bekknum.
• Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum um andlátið skuli komið til forráðamanna nemenda.
• Skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði fer heim til nánustu aðstandenda starfsmanns.
• Skólinn sendir samúðarkveðju til nánustu aðstandenda.
Andlát maka/barns starfsmanns:
• Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.
• Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið
• Skólaritari skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru.
• Gæta þarf að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann fái fregnina sérstaklega en ekki yfir hópinn
• Ef maki/barn umsjónarkennara fellur frá tilkynna skólastjóri eða aðili úr áfallaráði umsjónarbekknum andlátið.
• Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum skuli komið til forráðamanna nemenda.
• Aðilar úr áfallaráði veita þeim kennara sem tekur við bekknum aðstoð næstu daga. Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum um andlátið skuli komið til forráðamanna nemenda.
• Skólastjóri fer heim til nánustu aðstandenda starfsmanns.
• Skólinn sendir samúðarkveðju til nánustu aðstandenda.