Aðstandendur nemenda
Alvarleg veikindi aðstandenda nemenda:
• Skólastjórnendur og umsjónarkennari leita staðfestingar á veikindunum hjá forráðamanni nemandans.
• Upplýsingum er komið til allra sem málið varðar.
• Áfallaráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu.
• Aðilar úr áfallaráði aðstoða umsjónakennara við að undirbúa bekkinn hvernig hann tekur á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann.
Alvarleg slys aðstandenda nemanda:
• Skólastjórnendur eða umsjónakennari fá staðfestingu á slysinu hjá forráðamanni nemandans.
• Upplýsingum er komið til umsjónarkennara auk annarra sem málið varðar.
• Áfallaráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu.
• Aðilar úr áfallaráði aðstoða umsjónakennara við að undirbúa bekkinn hvernig tekið er á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann.
Andlát aðstandanda nemanda:
• Skólastjórnendur eða umsjónakennari leita staðfestingar á andlátinu hjá forráðamanni nemandans.
• Upplýsingum er komið til umsjónarkennara auk annarra sem málið varðar.
• Mjög áríðandi er að bera allar aðgerðir skólans undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og hafa þá með í ráðum frá upphafi.
• Áfallaráð kallað saman (ásamt sóknarpresti) á stuttan fund þar sem ráðið skiptir með sér verkum og ákveður fyrstu viðbrögð skólans.
• Skólastjóri kallar starfsfólk saman sem fyrst og tilkynnir dauðsfallið.
• Umsjónarkennari sér um áframhaldandi vinnu með bekknum en getur þó alltaf leitað til aðila úr áfallaráði um aðstoð.
• Bekkurinn undirbýr samúðarkveðju.
• Skólinn sendir samúðarkveðju til nemandans og fjölskyldu.
• Áfallaráð tekur ákvörðun um hvaða fulltrúi skólans verði við útförina.
• Aðili úr áfallaráði ásamt umsjónakennara heimsækir nemandann og færir honum gjöf, t.d. kerti, blóm og kort frá bekknum.
• Áfallaráð aðstoðar umsjónakennara við undirbúning þess að nemandinn mæti í skólann aftur til að auðvelda endurkomu hans.