Ef nemendur þurfa að mati foreldra að koma með síma eða snjalltæki í skólann skal vera slökkt á tækjunum eða þau í flugham.
Tækin eru ávallt á ábyrgð eigenda sinna.
Viðurlög ef reglum um síma er ekki fylgt:
• Fylgi nemandi ekki farsímareglum er hann minntur á reglurnar og gert að ganga frá símanum. Brjóti nemandi reglurnar ítrekað þrátt fyrir áminningu er honum boðið að velja á milli þess að:
a. afhenda kennara/starfsmanni símann. Síminn er geymdur hjá umsjónarkennara til loka skóladags.
b. fara á skrifstofu skólans og bíða þar uns foreldri hefur komið í skólann til að ljúka afgreiðslu málsins.
Ef nemandi á endurtekið í erfiðleikum með að fylgja farsímareglum Flataskóla getur komið til þess, að höfðu samráði við foreldra, að honum verði bannað að koma með síma í skólann.