Sjálflýsandi vesti
21.10.2020
Börnin í leikskóladeildinni deila skólalóðinni með öðrum nemendum í Flataskóla. Lóðin er stór og spennandi og eru börnin því ávallt í gulum sjálflýsandi vestum svo þau séu auðþekkjanleg og til að gæta fyllsta öryggis. Við notum töluvert ,,litla garðinn“ sem er afmarkað og afgirt svæði en einnig eru önnur svæði á lóðinni notuð og er nýji kastalinn og trampólínin afar vinsæl.