Nýtt skólaár
21.08.2020
Nú er skólastarfið að fara hægt og rólega af stað aftur og verða viðtöl og aðlögun nýrra barna í næstu viku.
Nokkrar breytingar hafa orðið á starfsmannahópnum. Helga Kristjánsdóttir leik- og grunnskólakennari hefur tekið við sem deildarstjóri yngsta stigs, þ.e. leikskóla og 1.-3.bekkja. Einnig hefur Herdís Jónsdóttir leikskólakennari bæst í hópinn. Svo verða Kristín leikskólakennari, Elín og Marley áfram með okkur.
Við erum fullar tilhlökkunar með uppbrettar ermar að skipuleggja starfið.
Í ljósi aðstæðna minnum við góðlátlega á eftirfarandi:
- Verum meðvituð um eigin smitvarnir og hugum vel að handþvotti og sprittun.
- Virðum 2 m regluna eins og kostur er.
- Verum vakandi fyrir flensueinkennum bæði hjá okkur og börnunum.
Einnig bendum við vinsamlega á að börn 12 ára og yngri mega ekki koma með né sækja börn í leikskólann. Er það gert af öryggisástæðum.
Við hlökkum mikið til samstarfsins í vetur.