Loksins! Skólastarf frá 4. maí 2020
30.04.2020
Mánudaginn 4. maí hefst venjubundið skólastarf á nýjan leik og veður opið í 4. og 5. ára bekk frá kl. 8-17. Það verður gott að koma öllu í sem eðlilegasta form á ný.
Þó sagt sé að skólahald verði með óbreyttu sniði þá verða enn töluverðar takmarkanir í gangi í skólanum og þá helst sem snýr að starfsfólki og foreldrum.
Börn
- Börn með kvef eða flensueinkenni komi ekki í skólann heldur verði heima.
- Einungis verður notaður inngangur 4 og 5 ára bekkjar á suðurgangi skólans þegar komið er með börnin og þau eru sótt. Sami inngangur og hefur verið notaður undanfarnar vikur (inngangur sem tilheyrir 4 og 5 ára bekk). Ekki verður í boði að ganga í gegnum skólann.
- Foreldrar mega aðeins koma inn í fataklefann en eru vinsamlega beðnir um að koma ekki inn í kennslustofurnar hvorki þegar komið er með barn að morgni né þegar það er sótt síðdegis.
- Ef nokkur börn eru sótt á sama tíma er mikilvægt að foreldrar vinni saman með að halda góðri fjarlægð sín á milli í fataklefanum.
- Mögulega verða börnin á útisvæði í lok dags að einhverju leiti.
- Þegar barn kemur í skólann hvern morgun verður fyrsta verkefni þess að þvo hendur vel.
- Útiföt barnanna mega vera í fataklefum alla vikuna en eins og áður þá á að taka útifötin heim um helgar.
- Börnin borða hádegismatinn í Krakkakoti eins og áður var
Foreldrar
Það verður ekki í boði fyrir foreldra að ganga með börnum sínum í gegnum skólann.
- Þar sem gæta þarf að því ekki verði of margir foreldrar í fataklefa á sama tíma þurfa mögulega einhverjir að hinkra.
- Það gæti því tekið örlítið lengri tíma að koma með eða sækja börnin
- Foreldrar hvattir til að nota handspritt þegar þeir koma inn í fataklefa
Frekari upplýsingar verða birtar síðar varðandi skólaslit, útskrift 5 ára barna.