Aðalmarkmið verkefnisins er að bæta samskipti og líðan nemenda í frímínútum. Boðið er upp á fjölbreytt viðfangsefni og unnið að þvi að virkja alla nemendur til þátttöku. Hópur nemenda, vinaliðar, fær sérstaka þjálfun til að stýra og stjórna leikjum og stöðvavinnu í frímínútum. Markmiðið er því að stuðla að fjölbreyttari leikjum í frímínútum, leggja grunn sem gerir nemendum kleift að tengjast sterkum vinaböndum, minnka togstreitu milli nemenda, hampa góðum gildum, svo sem vináttu, virðingu og því að allir fái að taka þátt. Verkefnið hefur nú fest sig í sessi og er mikil ánægja með það.