Í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, urðu Flataskóli og Laugarnesskóli fyrstu réttindaskólarnir á Íslandi, sá áfangi náðist í nóvember 2017.
Frístundaheimili þessara skóla, Krakkakot og Laugasel, fengu einnig viðurkenningu fyrir fyrstu réttindafrístundirnar á sama tíma. Í nóvember 2019 fengu sömu skólarnir og frístundirnar endurmat og því viðurkenningu í annað sinn.Síðan þá hafa margir skólar innleitt verkefnið og eru nú margir skólar á Íslandi orðnir Réttindaskólar. Réttindaskólar byggja starf sitt á Barnasáttmálanum en hann felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu. Næsta endurmat er fyrirhugað í nóvember 2022. Réttindaskólar eru alþjóðlegt vottunarverkefni sem hefur borið mikinn árangur meðal annars í Bretlandi og Kanada. Verkefnið felst í að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tekur á öllum þeim réttindum sem börn öðlast við fæðingu og hafa til átján ára aldurs.
Réttindaskólaverkefnið skapar ramma utan um þau markmið sem koma fram í aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, jafnrétti og lýðræði. Eitt af meginhlutverkum grunnskólans í samvinnu við heimilin er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins.
Þátttökuskólar leggja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til grundvallar öllu starfi sínu.
Heimasíða Réttindaskóla UNICEF