Nemendur úr 6. bekk OS tóku þátt í verkefninu að þessu sinni undir stjórn kennaranna Ólafar Sighvatsdóttur, Kolbrúnar Hjaltadóttur og Olgu Snorradóttur.
Flataskóli var þátttakandi í verkefninu fyrir hönd Íslands. Aðeins einn grunnskóli frá hverju Evrópulandi má taka þátt. Þetta er þriðja árið í röð sem við erum þátttakendur en árið 2011 náðum við fjórða sæti með þessu framlagi Íslands, árið 2012 níunda sæti með þessu framlagi og sjötta sæti árið 2013 með þessu framlagi.
The Europian Chain Reaction var valið eitt af níu bestu verkefnum í þessum flokki hjá MEDEA Awards árið 2012. Markmið með viðurkenningunni er að hlúa að og efla notkun margmiðlunar (hljóð, myndband, teikning og hreyfimynd) í skólastarfi. Viðurkenningin gefur einnig upplýsingar og styður við það sem vel er gert á uppeldis- og menntunarsviði í þessum flokki.
The European Chain Reaction, Winner of the special Award for European Collaboration in the creation of Educational Media 2011 is a science/art project and competition for primary schools that was created in 2011 by Dave Schrauwen, a teacher in the primary school Qworzó in Belgium.
Through this initiative, primary schools across Europe are challenged to create, film and upload a "Rube-Goldberg/Robert Storm Petersen-like" chain reaction, for which the best chain reaction receives a trophy. In the end all submitted chain videos are merged into a big cross-border European chain reaction.
Keðjan 2012 - 2013
Ólöf Sighvatsdóttir kennari stýrði verkefninu að þessu sinni en hún kennir eðlisfræði og náttúrufræði. Verkefnið gengur út á að búa til keðjuverkandi athöfn ("Rube Goldberg Chain Reaction") sem leiðir að ákveðnu marki. Í verkefninu taka þátt hátt í tuttugu skólar í Evrópu. Verkefninu er stýrt af Dave Schrauwen frá Belgíu og Michael Purves frá Skotlandi. Markmiðið er að búa til flottustu, furðulegustu og mest krefjandi keðjuverkunina. Tekið var myndband af keðjunni sem mátti vera 1 til 2 mínútur að lengd. Þá var kosið um flottustu og best úfærðu keðjuna þar sem þátttakendur gáfu hverjir öðrum stig og vann það land sem fékk flest stigin. Ísland fékk 126 stig og lenti í 6. sæti Noregur var í fyrsta sæti og fékk 169 stig og Þýskaland varð í öðru sæti og fékk 168 stig. Hægt er að lesa nánar um verkefnið á bloggsíðu þess.
Hér er myndband þar sem nemendur verkefnisins kynna sig.
Evrópska keðjan frá 6.OS árið 2013
Bloggsíða verkefnisins 2012 - 2013
Bloggsíða verkefnisins 2011 - 2012
Bloggsíða verkefnisins 2010 - 2011
Helstu reglur verkefnisins:
- Nemendur verða að vinna verkefnið sjálfir með aðstoð kennara.
- Kennarar mega aðstoða nemendur við upptöku á myndbandinu og nota má tónlist við verkefnið þar sem ekki þarf höfundaréttarleyfi.
- Myndbandið má vera allt frá 1 til 2 mínútur að lengd.