Lestur og skimanir
Flataskóli fylgir lestrarstefnu Garðabæjar.
Í lestrarstefnu Flataskóla kemur fram hvernig kennarar ætla að vinna að því að nemendur nái læsisviðmiðum.
Ef nemendur eiga í vandræðum við að ná viðmiðum í lestri skal setja sig í samband við deildarstjóra stoðþjónustu og ráðfæra sig við hann um áframhaldandi þjálfun nemenda.
Lesfimipróf menntamálstofnunar eru lögð fyrir af umsjónarkennurum allra árganga þrisvar sinnum á ári, í september, janúar og maí.
Aðrar skimanir eru:
• 1. bekkur: Lesskimun fyrir 1. bekk (Ltl-skimun)
• 3. bekkur: LOGOS – lestrarskimun janúar
• 6. bekkur: LOGOS – lestrarskimun nóvember
Mynd: Maíviðmið Menntamálstofnunar fyrir lesfimipróf lesferils. Myndin sýnir hlutfall rétt lesinna orða á mínútu.